Sunday, October 30, 2005

Litlir Verar

Litlir verar hittust í fyrsta skiptið í síðustu viku heima hjá Vera Hárfésa. Þetta var mikil hátið þar sem Veri Hárfési og Veri Útsendari gátu ekki annað en brosað út að eyrum. Vera nöfn verða svo ákveðinn fljótlega eftir skírnina hjá Vera Hárfésa sem er bara á næstu grösum.



Annars fengust þær fréttir heima hjá Vera Hárfésa að Veri Köfun væri kominn með kærustu og að hún væri lifandi ( alvöru þið skiljið ). Það var einnig verið að tala um það að hún ætlaði að koma í skírnina til fésa á mánudaginn. Okkur hlakkar gríðalega mikið til að hitta hana hér á Heim Verans og verður skrifaður lítill pistill um hana hér í næstu viku ( 100% ). Fréttir af Vera Vesen líka hann er farinn til Las Vegas og við vitum ekki alveg hvort það er gott eða slæmt, kemur bara í ljós. Veri Vesen ætlar meðal annars að fara á stæðstu bílasýningu í heimi, U2 tónleika, Þyrluferð yfir Las Vegas ( að nóttu til ) og fá sér nokkra bjóra. Hann sagðist ætla að fara varlega samt....

Þessu er lokið í bili

Kveðja Veri Útsendari

Thursday, October 27, 2005

Staðfesting

Staðfest er hér með í Heim verans að tveir nýjir verar hafa fæðst. Eiður Rafn Valsson og ? Birgisson. Viljum við óska þeim til hamingju með allt og bara gangi þeim vel í þessum harða heimi. Veranöfn verða valin á þá eins fljótt og auðið er. Gaman er að segja frá því að Veri Útsendari hélt mikla veislu þar sem hann bauð vinum og vandamönnum ( og fólki sem hann hefur aldrei séð) út á Ásvelli. Þetta var skírnarveisla af bestu gerð þar sem menn gátu komið og troðið í vömb. Ekki eru þetta stórar fréttir í venjulegu tali en hér á Heim Verans eru þetta stórfréttir. Jú þarna voru mættir fræknir menn í jakkafötum og bara ansi flottir. Hér kemur upptalning Veri Hárfési, Veri Köfun , Veri Head, Veri Vesen og Veri Útsendari. Þess má geta að Veri Vesen stóð undir nafni og kom með gaurana sína, þeir byrjuðu strax með vesen. Við komu Vera Köfun og Vera Head réttu þeir Vera Útsendara bréf sem á stóð drengur valsson. Við mikinn misskilning sprakk ég úr hlátri því við fyrstu sýn hélt ég að þarna stæði DVERGUR VALSSON. Svona getur nú verið gaman að vera til hehe.

Já það hefur mikið gengið á síðustu vikurnar hjá okkur Verum og því ekkert verið uppfært í langan tíma. Við munun nú bæta úr þessu og verður haldinn fundur fljótlega þar sem net-mál og blogg verða sérstaklega rædd.

Kveðja Veri Útsendari

Thursday, April 21, 2005

Minn innri inniskor !

Já það flæða inn bréf til Vera Útsendara þar sem menn vilja ólmir komast yfir upplýsingar. Ekkert lát er á vinslældum bloggsins ógurlega og því ekki um annað að ræða en að halda áfram að skrifa. Ég er ekki alveg viss um hvernig eða hvar Veri Hárfési heldur sig þessa daganna en hann er allavega ekki tengur við netið. Heimur Verans hefur liðið ógurlegt tap á skrifum vegna þessa en vonandi hefur fésið keipt sér rakvél og byrjar að skrifa aftur innan tíðar .Mikið fjör hefur verið á Vera Köfun undanfarnar vikur og verð ég lýsa yfir mikilli ánægju og nefna viðtal hans við Vera Grifflu sem er alger snilld. Mæli með því að sem flestir kíki í kaf sem fyrst brak brak http://www.blog.central.is/ofurdvergur/. Annars er það helst að frétta héðan að fótboltaævintýri Vera Útsendara heldur áfram og er ég byrjaður að spila leiki í dönsku 3.deildinni af miklu kappi. Í síðustu viku var leikur á móti Bilbö sem er nú ekki frásögufærandi nema fyrir þær sakir að Veri Útsendari var center og stóð sig bara nokkuð vel, þó ég segi sjálfur frá. Þriðji leikurinn þetta sumarið er svo á morgun og verð ég vist að koma með kassa af bjór fyrir strákana því ég var svo vitlaus að segja öllum að ég mundi pottþétta skora á móti Bilbö sem ég gerði ekki. Þetta verður nú samt örugglega hressandi leikur þar sem maður veit af kassanum á hliðarlinunni. Þess má geta að eins og allir Verar vita að þá býr mikið fjör í einum kassa af bjór, jafnvel ekkert annað sem hefur að geyma jafn mikið fjör.

Með inniskó að vopni og sumarkveðju frá Vera Útsendara

Monday, April 18, 2005

Veri Utsendari stendur i ströngu !

Fyrir þá sem ekki vissu fór Veri Útsendari til Finnlands að vinna að könnunarverkefni fyrir Heim Verans. Verkefnið var einfalt eða svo héldu menn í fyrstu. Átti ég að fara til Finnlands og finna þar furðufólk sem þróast hefur í landi hinna þúsund vatna. Ekki leið á löngu fyrr en Veri Útsendari hitti fyrsta stökkbreytta manninn, viðkomandi maður var í plastbuxum í bleikum jakka síðum að framan en stuttum að aftan. Aldrei hefur Útsendari orðið eins sjokkeraður, hugsaði með mér þetta gæti ekki verið raunverulegur maður. En eftir aðeins nokkra klukkutima í Finnlandi þar sem blaut handklæði fljúga um loftin blá og ibúar landsins tala tungum, áttaði ég mig á því hvað var í gangi. Áralöng þróun og skortur á landi hefur orðið til þess að Finnar eru farnir að búa neðansjávar en þeir vilja alls ekki segja ibúum jarðar frá þessu. Veri Útsendari lét ekki blekkjast og var staðráðinn í því komast til botns í þessu stóra leindarmáli okkar finnsku "vina". Útsendari vissi einnig að eina leiðin til að blandast inn í menninguna væri að kaupa sér frakka sem væri síður að framan og stuttur að aftan. Þetta tók nú sinn tima en að lokum tókst mér að finna slíka flík, sú var græn hönnuðu af þekktum gosframleiðanda í Finnlandi og þótti mér þessi frakki stórkostlegur í meira lagi. Þegar ég kom svo út úr búðinni var eins og nýr heimur tæki á móti mér. Ég var náttúrulega í dulargerfi en það vissi enginn nema ég. Þetta var svo mikil yfirburðar staða að ég gekk að næsta manni og talaði tungum,fyrr en varði var mér boðið í neðansjávarparty aldarinnar. Þegar þangað var komið hitti ég stórann blökkumann sem talaði tungum, sá var klæddur trésamfesting líklega spreyjaður blár. Hann sagði mér að ekki væri aftur snúið, ég væri nú fastur í landi furðufugla og frakka sem væru síðir að framan en stuttir að aftan.

Veri Útsendari hefur oft verið á ystu nöf í sínum verkefnum en aldrei hefur hann lent í eins miklum háska og í Finnlandi. Mæli ekki með því fara í frakka síðum að framan en stuttum að aftan til Finnlands, án þess að vera tilbúinn. Þetta gæti hæglega kostað líf. En að öllu bulli sleptu þá vitum við nú að Finnar búa lika í sjónum.

"Þeir sem vilja vita hvernig ég slapp úr neðansjávarpartyinu verða að senda mér e-mail því sú saga er ekki fyrir óbreytta"


Kveðja Veri Útsendari

Wednesday, April 13, 2005

Heimur verans snýr aftur

Heimur verans hefur legið niðri undanfarin misseri vegna þess að veri hárfési hefur ekki getað skrifað sökum óvengjulegs hárvaxtar á baki sínu og veri útsendari var strandaglópur í Finnlandi ásamt óþekktum blámanni. Hárfési keypti sér þó rafmagnsrakvél í Bónus og því er líklegt að þessi dularfulli bakhárvöxtur hverfi fljótlega. Útsendari mun einnig snúa aftur frá Finnlandi til fyrri heimkynna sinna en taka skal fram að blámaðurinn fer ekki með honum. Heimur verans biðst velvirðingar á þessu.

Life aquatic with Steve Zissou

Einhvernveginn er mjög erfitt að lýsa þeirri upplifun sem átti sér stað þegar þessi ræma byrjaði að flæða inn í heilabú Vera Útsendara. Allt í einu fannst manni eins og heimurinn væri breyttur og Steve Zissou væri maðurinn á bak við þetta allt saman. Ég hugsaði lika um Vera Köfun því þetta er jú kafaramynd sem fjallar um ævintýraköfun af bestu gerð. Þess má geta að Tigershark og sigurrósaratriðið var svakalegt, þetta er eitt af bestu atriðum í sögu kvkmyndagerðar. Einnig verð ég að lýsa yfir mikilli ánægju með dansinn hjá Bill þegar hann útskýrir nýjasta köfunarbúnaðinn hjá Team Zissou. En í þessum búnaði er lika útvarp sem gerir köfunina mun skemmtilegri. Einnig hefur þessi mynd að geyma eitt besta hasaratriði sem ég hef séð á hvitatjaldinu. Allt gerist það í slow motion þar sem einn maður hefur betur en svona 30 sjóræningjar að hætti Rambo ( nema þetta er bara svo miklu betra ). Já Verar og óbreittir þetta er mynd sem enginn á að láta fram hjá sér fara.

Kveðja Veri Útsenari ( team zissou for life )

Monday, March 21, 2005

Allt í járnum í pastalandinu!

Mikil spenna ríkir nú á Ítalíu þar sem risarnir tveir, Ac Milan (tískudrengirnir) og Juventus ("gamla konan"), heyja mikið einvígi um ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu ( scudettoinn). Í gærkvöldi fóru tískudrengirnir á kostum gegn skylmingarþrælunum frá Rómarborg og var hrein unun að sjá þá leika listir sínar með knöttinn. Slógu þeir upp pastaveislu þar sem Rómverjum var skolað niður með rauðvíni í boði Gallianis, varaforseta liðsins. Var Galliani hinn spakasti upp í stúku í gervi mafíósa og tottaði hann vindilinn af sinni alkunnu snilld. Einhver undraefni virðast vera í vindlingi þessum en ekki er ljóst að svo stöddu hvert efnið er. Liðið er hreint út sagt magnað þessa dagana og verður erfitt fyrir "gömlu konuna" að stöðva drengina frá tískuborginni úr þessu.

"Gamla konan" hans vera köfuns nartar samt sem áður enn í hæla tískudrengja en ljóst er að hún má ekki slá slöku við ef ekki á illa að fara. Veit ég að veri köfun er hinn órólegasti vegna þessa og heyrst hefur að hann hafi fjárfest í splunkunýjum hraðskreiðum hjólastól svo að sú gamla haldi haus.

Friday, March 11, 2005

Hvor setningin er betri?

"Gríðarleg sprenging varð í gærkvöldi"

eða..

"Mjög góð sprenging varð í gærkvöldi"

"Með kassa á bakinu"-tískudrengirnir vel smurðir og gamla konan að braggast

Þá er fyrstu umferð "með kassa á bakinu" lokið að undaskildum leik Inter og Porto sem fram fer í næstu viku. Það má segja að það hafi dregið til tíðinda því ýmsir gárungar þurftu þessa keppni að kveðja fyrir fullt og allt. Voru menn því ýmist glaðir eða súrir í bragði. Að vanda hittust hinir miklu kappar í leðri Tíkalls og var stemmari magnaður sem fyrr.

Veislan byrjaði þegar vélmennin í Chelsea gjörsamlega völtuðu yfir slaka Börsunga. Það sem kom mest á óvart í leiknum var að veri pungur (Óli Tryggva) kom óvænt inn á í liði Chelsea þegar skammt var eftir af leiknum en þó voru menn ekki alvega sammála um að þetta væri hann. Að sögn vera útsendara var þetta að minnsta kosti bróðir hans og féllust menn að lokum á þá tilgátu. Júlli súla heldur því áfram keppni á kostnað Rússa Rokks.

Tískudrengirnir frá Mílanó komu vel gélaðir og greiddir til leik gegn bjórbelgjunum frá Manchester. Gattuso nagaði öll bein sem hægt var að naga og berserkurinn Stam lamdi allt sem lemja þurfti. Það hefði líklega verið nóg að hafa þessa tvo geðsjúklinga inn á vellinum til að tryggja tískudrengjum áframhaldandi þátttöku, slíkir voru yfirburðir þeirra. Það merkilegasta við leikinn var að Costacurta, sem spilað hefur með tískudrengjum frá 1899, lék í afa-takkaskóm úr hertu leðri. Að sögn vera útsendara spilaði afi hans einnig í þessum skóm fyrir langa löngu. Veri hárfési er heldur því áfram keppni en veri útsendari er úr leik.

Gamla konan hans vera köfun beitti Madrídarmenn göldrum í leik liðanna í steinsteypuskrímslinu ógurlega. Svo virðist sem gamla konan sé að braggast eftir dapurt gengi seinustu vikna. Það er greinilegt að Agnelli Fiat-viðbjóður hefur keypt splunkunýjan rafmagnshjólastól fyrir kuntuna en spurning er hversu lengi hjólastóllinn muni endast. Veri köfun er því áfram á kostnað Tíkalls.

Halli the flying head sannaði enn og aftur kunnáttu sína þegar rauði herinn lagði Leðurkúsen menn að velli á sannfærandi hátt. Það má því segja að Halli sé ótvíræður sigurvegari þessarar umferðar.

Þýska stálið hans Óðins bræddi Arsenal-drengina hans Lúlla svo um munaði og má Lúlli því bara fara að lúlla núna.

Einn leikur er eftir í umferðinni og þá kemur í ljós hvort hinn þekkti vargur, Gulfi Gulfa, heldur keppni áfram eða ekki.

Höfundur:veri hárfési